Salerni
Tengi býður salerni í vönduðu úrvali. Hvort sem þú óskar þess að hafa það upphengt eða standandi á gólfi.
Við vekjum athygli á því að einnig er hægt að sérpanta í fleiri litum frá völdum framleiðendum.
Auðveldari þrif og bætt hreinlæti
Frágangur á skolbrúnum getur verið er mismunandi á milli ólíkra salerna. Til að auðvelda þrif og hreinlæti mælum við með salernum sem ekki eru með skolbrún.
Skipta út eða algjör endurnýjun
Við val á salerni er ýmislegt sem þarf að hafa í huga. Ef þú ert að skipta út nýju fyrir gamalt og á að tengjast með sama hætti og eldra þá þarf staðsetning á stútum að passa. Ef þú ert hins vegar að endurnýja baðherbergi alfarið þá eru ýmsir valkostir.
Valmöguleika eru á mismunandi þykkt og hæð á innbyggðum vatnskössum fyrir salernið sem geta haft áhrif á heildarhönnun baðherbergisins. Hafðu samband og fáðu aðstoð faglegra söluráðgjafa okkar.