Viðskiptaskilmálar reikningsviðskipta
Umsókn um reikningsviðskipti
Þær upplýsingar sem verða sóttar eru annarsvegar upplýsingar úr vanskilaskrá Creditinfo og svo hinsvegar lánshæfismat sem metur líkurnar á vanskilum tólf mánuði fram í tímann.
Tengi setur það sem skilyrði við samþykkt reikningsumsóknar að viðkomandi sé ekki skráður á vanskilaskrá Creditinfo Ísland, ásamt því þarf CIP áhættumat Creditinfo Ísland að vera 7 eða lægra.Viðkomandi má ekki vera á vanskilaskrá hjá Creditinfo svo umsóknin fáist samþykkt. Ábyrgðarmaður þarf að vera fasteignareigandi.Aðeins þeir sem eru í forsvari fyrirtækja geta sótt um reikningsviðskipti hjá Tengi líkt og fjármálastjórar, framkvæmdastjórar og aðrir prófkúruhafar.Upplýsingum um útgáfu reikninga á lögaðila, fjárhæð þeirra og hvenær þeir verða greiddir, kann að verða miðlað áfram í Greiðsluhegðunarkerfi Creditinfo Lánstrausts hf.
Tryggingar
Þegar um háar lánsfjárhæðir er um að ræða fer Tengi ehf. fram á tryggingar sem er metið hverju sinni. Þau tryggingarform sem notast er við eru annarsvegar sjálfskuldarábyrgð þar sem einstaklingur/einstaklingar gangast í sjálfsskuldarábyrgð vegna vöruúttektum félags í eigu þeirra. Ábyrgðarmenn þurfa að vera fasteignaeigendur og ekki á vanskilaskrá. Hinsvegar er notast við bankaábyrgð þar sem viðskiptabanki viðskiptamanns tekst á hendur ábyrgð á vöruúttektum viðkomandi viðskiptamanns til ákveðins tíma. Greiðslu þarf að inna af hendi fyrir lok gildistíma ábyrgðar.
Greiðsluskilmálar og innheimtukostnaður
Úttektarmánuður er almanaksmánuður hverju sinni. Uppsöfnuð viðskiptaskuld er með gjalddaga 5. dag næsta mánaðar og eindagi er 20. þess sama mánaðar. Sé skuld ekki greidd á eindaga reiknast dráttarvextir frá gjalddaga. Falli skuld í eindaga eru send út innheimtuviðvörun og innheimtubréf og er kostnaður vegna þessarar innheimtu skuldfærður á viðskiptareikning. Vísað er til laga nr. 95/2008 og reglugerðar varðandi innheimtugjöld. Sé innheimtuviðvörun og innheimtubréfi ekki sinnt þá er krafan send í lögfræðiinnheimtu.
Rafrænir reikningar – Mitt tengi
Hægt er að velja um ýmis form reikninga en í gegnum Mitt Tengi er hægt að skoða reikninga, stöðu pantana og fá stöðuyfirlit. Viðskiptavinir geta óskað eftir því að fá reikninginn sendan rafrænt í tölvupósti eða með skeytamiðlun. Ef ekkert af þessum leiðum er valin er hefðbundinn reikningur sendur í pósti.
Við umsókn á reikningsviðskiptum þarf að fylla út eftirfarandi umsóknarform