Saga Tengis

Fyrirtækið Tengi var stofnað í desember 1981 af hjónunum Sigurjóni G. Sigurjónssyni og Önnu Ásgeirsdóttur.

Reksturinn var fyrstu árin sem aukabúgrein, en óx svo fiskur um hrygg og það má segja að þáttaskil hafi orðið í rekstrinum þegar Tengi hóf innflutning á Mora blöndunartækjum árið 1985.

Þórir Sigurgeirsson, tengdasonur hjónanna bættist við skömmu síðar og störfuðu þau þrjú við reksturinn um hríð.

Tengi er fjölskyldufyrirtæki og hefur starfsemi fyrirtækisins alltaf verið í Kópavogi. Eins og í mörgum góðum fyrirtækjum byrjaði reksturinn smátt, var fyrstu árin í bílskúrnum, en árið 1988 var tekin sú ákvörðun að flytja að Nýbýlaveg 18 þar sem fyrirtækið var í 7 ár.

Vöxturinn var alltaf upp á við á hverju ári, fleiri starfsmenn bættust við og ný vörumerki til að styrkja flóruna sem fyrir var og ekki leið á löngu þar til húsnæðið var orðið alltof lítið og tími til kominn að færa sig. Árið 1995 var keypt húseignin Smiðjuvegur 11a og þar hófst annar kafli í sögu Tengis og fyrirtækið dafnaði vel.

Eftir 10 farsæl ár var ákveðið að ráðast í að byggja nýtt og glæsilegt húsnæði að Smiðjuvegi 76 og var starfsemin flutt þangað 25. júlí 2005.
Haft var að leiðarljósi að húsið væri sýningarhús fyrir þær vörur sem Tengi er með í sölu og allar lagnir í húsinu væru sem sýnilegastar.
Sigurjón náði því miður ekki að sjá þennan draum sinn rætast, en hann féll frá í
maí 2005. Starfsmenn Tengis á þessum tíma voru orðnir 22.

Í janúar árið 2007 var reksturinn útvíkkaður með opnun nýrrar verslunar að Baldursnesi 6 á Akureyri og hefur sá rekstur gerbreytt aðstöðu fyrirtækisins á því svæði og verið mjög vaxandi. Þar eru nú starfandi 6 starfsmenn.

Í júní árið 2021 opnaði Tengi verslun að Austurvegi 69 á Selfossi til að geta þjónustað suðurlandið betur, en miklar byggingaframkvæmdir hafa verið á þessu svæði síðustu ár. Þar eru starfandi 4 starfsmenn. 

Tengi hefur verið svo lánsamt að hafa á að skipa frábæru starfsfólki.
Margir þeirra hafa verið hjá Tengi í mörg ár og hafa gríðarlega reynslu og þekkingu á hreinlætistækjum og pípulagningaefnum.

Tengi mun áfram leitast eftir því að vera leiðandi fyrirtæki og framtíðarsýnin er að vera fyrsti valkostur þeirra viðskiptavina sem kunna að meta gæðavörur og framúrskarandi þjónustu.

Stefna Tengis
Pössum upp á það sem við höfum, fylgjumst með því sem er að gerast, sækjum varlega og yfirvegað fram, byggjum á góðum vörum og framúrskarandi þjónustu, og styrkjum samheldni og hugarfar hópsins.

Framkvæmdastjóri Tengis er Þórir Sigurgeirsson og stjórnarformaður er Anna Ásgeirsdóttir.